AlgemeenVoorwaardenPrivacyContact
 
Bijwerken
Víðsjá

Víðsjá

Uitgebracht: 2023-01-03
© RÚV
Víðsjá - QR Code
506 afleveringen
Audio
Luister in Apple Podcasts
506 afleveringen
Audio
Luister in Apple Podcasts
Uitgebracht: 2023-01-03
© RÚV
Meest recente aflevering
Auglýsingahlé, Dorothy Iannone, Mátulegir

Auglýsingahlé, Dorothy Iannone, Mátulegir

Upplýsingar og sjálfsmyndir eru fyrirbæri sem skilgreina samtíma okkar, að mati myndlistarmannsins Sigurðar Ámundasonar, en hann sýnir um þessar mundir teikningar á auglýsingaskiltum borgarinnar. Frá því að nýja árið hófst hafa verk
Tijd: 55:00
Upplýsingar og sjálfsmyndir eru fyrirbæri sem skilgreina samtíma okkar, að mati myndlistarmannsins Sigurðar Ámundasonar, en hann sýnir um þessar mundir teikningar á auglýsingaskiltum borgarinnar. Frá því að nýja árið hófst hafa verk Sigurðar yfirtekið ljósaskilti og í stað auglýsinga sjáum við nú merkingarlaus vörumerki sem túlka ekkert og hafa ekki upp á neitt að bjóða nema kannski sjálf sig. Sigurður verður gestur okkar í dag.
Bandaríska myndlistarkonan Dorothy Iannone tók á sínum tíma þátt í hræringum fluxus og hugmyndalistarinnar á síðari hluta 20. aldar. Það var síðan með sýningu í New Museum í New York sem stjarna hennar fór að rísa á nýrri öld og hafa litrík og oft sjálfsævisöguleg verk hennar farið víða á undanförnum árum. Dorothy Iannone lést 89 ára nú á jóladag. Við rifjum upp ævi hennar og líka hvernig hún kom skyndilega inn í íslenska myndlist einn vordag árið 1967 þegar hún hitti myndlistarmanninn Dieter Roth í fyrsta sinn á hafnarbakkanum í Reykjavík.
Nína Hjálmarsdóttir rýnir í Mátulega, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu þann 30.desember.
Aflevering-ID: 1000592161468
GUID: https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5232311D0.mp3
Releasedatum: 3-1-2023 17:05:00

Beschrijving

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Apple Podcasts: Recensies van klanten

Geen item